Hærra, hraðar, lengra. – Mikilvægi styrktarþjálfunar hefur aukist gríðarlega í faglegum þáttum allra íþróttagreina. Þetta á líka við um þjálfun yngri iðkenda, þó þar sé ekki bara verið að einblína á að bæta frammistöðuna.
Styrktarþjálfun er notuð til að fyrirbyggja meiðsli með því að undirbúa vöðva, bandvefi, sinar og liðbönd til að þola meiri átök.
Börn og unglingar hafa mismunandi líkamlega burði sem þarf að taka mið af þegar velja á æfingar og álag. Æfingaáætlunin þarf að vera viðeigandi fyrir þroska og vöxt hvers og eins. En ofar öllu þarf að velja réttu æfingaráhöldin.
Árangursrík þjálfun án lóða
Aldursskiptar æfingar, íþrótta- og undirbúnings þjálfun með FLEXVIT æfingateygjum getur hjálpað börnum og unglingum að bæta frammistöðu, líkamsstöðu og líkamsvitund á margan hátt og án meiðsla áhættu. Börn og unglingar á sama aldri styrkjast mishratt og geta því verið á mismunandi styrktarstigi svo æfingaáætlunin þarf alltaf að vera einstaklingsmiðuð.
Þjálfun með æfingateygjum býður upp á marga möguleika. Með þeim er hægt að beita dýnamískum kröftum í allar áttir og tæknin er einföld. Þær bjóða upp á fjölbreyttar æfingar og skila á sama tíma miklum árangri.
Æfingateygjur valda litlu álagi á liðamót og eru því frábær kostur fyrir þá sem eru að taka út líkamlegan þroska og þurfa að forðast of mikið álag með öllum tiltækum ráðum.
Eingöngu þróaðar fyrir börn og unglinga
FLEXVIT Youth æfingateygjurnar voru hannaðar sérstaklega fyrir börn og unglinga. Því lægri sem líkaminn, því minni er mjaðmabreiddin og minni kraft framleiðni sem var tekið sérstaklega tillit til við framleiðsluna.
FLEXVIT var frá upphafi þróunarinnar í nánu samstarfi við sjúkraþjálfara og þjálfara í yngri flokkum, sem prófuðu æfingateygjurnar við þjálfunina. Það var markmið FLEXVIT að finna út réttu mótstöðuna og besta teygjanleikann.
Að sjálfsögðu eru Youth æfingateygjurnar búnar til úr hinu þekkta FLEXVIT efni og framleiddar í Þýskalandi. Þess vegna hafa þær sömu sérstöku eiginleikana og aðrar FLEXVIT æfingateygjur; mikinn styrkleika, mikla þvottheldni og þæginlega viðkomu við húðina þar sem ekkert gúmmí/latex liggur þar við.
