FLEXVIT Byrjendapakki Börn/Unglingar

Með FLEXVIT ungdóms pakkanum geta börn og unglingar byrjað strax að æfa, heima eða hvar sem er.  FLEXVIT MinY og  FLEXVIT MultY voru hannaðar sérstaklega fyrir börn og unglinga

  • Börn/unglingar fá tækifæri til að gera árangursríkar æfingar miðað við eigin þroska og vöxt.
  • Bæta líkamlegan styrk og koma í veg fyrir meiðsli
  • Gera æfingarnar skemmtilegar án þess að valda ofálagi

 

Inniheldur

  • 1x FLEXVIT MultY
  • 3x FLEXVIT MinY (létt, milli, sterk)
  • Þvotta/geymslupoki fylgir

11.995 kr.

Framboð: Á lager

- +

Lýsing

FLEXVIT barna/unglinga æfingateygjurnar eru fyrstu sinnar tegundar í heiminum sem eru sérhannaðar til að mæta þörfum þjálfunar barna og unglinga í styrktaræfingum.  Þær geta hjálpað börnum og unglingum að bæta frammistöðu, líkamsstöðu og líkamsvitund á margan hátt og án þess að valda of miklu álagi á vöðva, liði eða bein.

 

FLEXVIT MultY æfingateygjan er framleidd úr efni sérstaklega fyrir börn og unglinga; mótstaðan, teygjanleikinn og stærðin passar þeirra líkama. FLEXVIT MultY er með 15 ísaumuðum lykkjum í æfingateygjuna sem auka notagildi hennar til að gera fjölbreyttar mótstöðu æfingar án lóða.

 

FLEXVIT MinY hentar vel til að þjálfa upp vöðvaójafnvægi og veikleika á axlargrind og mjaðmagrind sem getur verið hjá börnum/unglingum vegna mikillar kyrrsetu og ónógrar hreyfingar.  Einnig nýtist hún ungu íþróttafólki til að gera æfingar sem geta komið í veg fyrir meiðsli og undirbúið líkamann fyrir meira álag.

 

Með því að nota FLEXVIT MultY og MinY við þjálfunina hjá börnum/unglingum er hægt að tryggja fjölbreytta þjálfun.

 

Notkunarmöguleikar og þjálfunar áherslur:

  • Hægt að gera með þeim æfingar til að nota toga og ýta.
  • Mikill teygjanleiki þeirra hentar til að gera æfingar í stórum hreyfimunstrum.
  • Auka fjölbreytileika í æfingavali.
  • Undirbúningur fyrir líkamann til að takast á við meira álag í íþróttinni.
  • Hentar fyrir byrjendur sem ekki eru vön styrktaræfingum.
  • Hentar vel fyrir þjálfun þar sem börn/unglingar eru að byrja að læra grunn hreyfimunstur (hnébeygjur, armbeygjur, hopp og fleira)

Pakkinn

Mótstaða FLEXVIT MinY : Grasker (Létt) Neon (Milli) Azure (Sterk)  –   FLEXVIT MultY : Græn (Milli létt)

Tengdar vörur

Shopping Cart
Scroll to Top